Viðsnúið þak

Mismunandi þök kalla á ólíka nálgun í uppbyggingu á þakefninu og lögum þakefnis.

Viðsnúið þak

Viðsnúið þak, einnig kallað öfugt þak er uppsett á þann hátt að þakpappi er bræddur beint á þakflötinn.


Eftir það er einangrun lögð ofan á þakpappann.

Þetta gerir það að verkum að þakdúkurinn er varinn gegn sólarljósi og hitastig þakpappans er jafnara á milli árstíða.


Líftími pappans verður því almennt lengri en á þakpappa sem er undir stöðugu sólarljósi.


Þakpappinn er heilsoðinn á flötinn sem gerir það að verkum að ef leki kemur upp þá er auðveldara að staðsetja lekann.


Dæmi um uppbyggingu

  • Þakflötur og kantar grunnaðir með Index grunni á hreinan og sléttan þakflöt

  • Undirlag er soðið á þakflöt og upp á kanta með gasloga. Þakpappinn er látinn skarast um 8-10 cm á langhlið og 15 cm þversum. Þakdúkurinn er lagður eftir stefnu þakhalla.

  • Yfirlag er brætt á undirlag í sömu stefnu. Yfirlag er látið skarast við miðju undirlags.

  • XPS einangrun eru lögð ofan á yfirlag og passað að lagt sé þétt saman að köntum svo ekki myndist kuldabrú.

  • Afrennslisdúkur er lagður ofan á XPS einangrun með skörun til að hylja einangrunina að fullu.

  • Rúnuð sjávarmöl lögð ofan á dúk

Fleirri útfærslur á viðsnúnu þaki


Á viðsnúin þök er t.d. hægt að setja eftirfarandi:


  • Möl
  • Hellur
  • Torf
  • Svo er hægt að blanda þessu öllu saman

Við erum klár í samtalið um þínar þarfir

Heyrðu í okkur og fáðu ráðgjöf um hvað hentar þínum þörfum, annað hvort með símtali eða fyrirspurn hérna af síðunni.

Hafa samband